Þjónusta sem tengir saman fleiri þætti verkefnisins
Glóra veitir hönnun og ráðgjöf fyrir byggingar- og mannvirkjaverkefni. Umfang þjónustunnar getur verið allt frá afmörkuðu hönnunarverkefni yfir í samhæfingu og eftirfylgni fleiri verkþátta.
Hönnun og teikningar
Við þróum hugmyndir yfir í skýrar og framkvæmanlegar lausnir og vinnum gögn sem nýtast við leyfisveitingar, útboð og framkvæmdir.
- Arkitektahönnun
- Aðaluppdrættir
- Verkteikningar og vinnuteikningar
- Þrívíð framsetning hönnunar
- Skipulagsvinna
Tæknileg hönnun
Tæknilegar lausnir þurfa að tengjast arkitektúr, notkun byggingarinnar og framkvæmd hennar. Við vinnum að samhæfðum lausnum þar sem upplýsingar eru skýrar og nýtast áfram í verkefninu.
- Burðarvirkishönnun
- Lagnahönnun
- BIM — Building Information Modeling
Stjórnun og samhæfing hönnunar
Þegar margir ráðgjafar koma að sama verkefni skiptir samhæfing miklu máli. Glóra getur haldið utan um hönnunarferlið og stuðlað að því að ákvarðanir, gögn og ábyrgð séu skýr.
- Hönnunarstjórn
- Samhæfing hönnunargagna
Kostnaður og áætlanir
Góðar ákvarðanir byggja á raunhæfum upplýsingum um umfang, tíma og kostnað. Við vinnum áætlanir sem styðja við ákvarðanatöku áður en framkvæmdir hefjast og meðan á verkefni stendur.
- Kostnaðaráætlanir
- Verkáætlanir
- Tilboðsgerð
- Kostnaðareftirlit
Framkvæmdir og eftirfylgni
Hönnun þarf að skila sér rétt yfir í framkvæmd. Glóra getur fylgt verkefnum áfram og aðstoðað við utanumhald og eftirlit á framkvæmdastigi.
- Umsjón byggingarframkvæmda
- Eftirlit byggingarframkvæmda
Hvaða þjónustu þarf verkefnið?
Ekki þurfa öll verkefni sömu nálgun. Stundum vantar afmarkaða hönnun eða áætlun. Í öðrum verkefnum þarf að samhæfa fleiri þætti frá upphafi. Sendu okkur helstu upplýsingar um verkefnið og við getum rætt hvaða nálgun hentar.
Ræða verkefni