Lausnamiðað ráðgjafa- og þjónustufyrirtæki í mannvirkjagerð.
Glóra er lausnamiðað ráðgjafa- og þjónustufyrirtæki með áralanga reynslu í hönnun fjölbreyttra byggingarverkefna, mannvirkjagerð og almennri verkfræðiþjónustu.
Við sjáum um flestalla hönnun og ráðgjöf við mannvirkjagerð.
Glóra er lausnamiðað ráðgjafa- og þjónustufyrirtæki með áralanga reynslu í hönnun fjölbreyttra byggingarverkefna, mannvirkjagerð og almennri verkfræðiþjónustu.
Við komum að verkefnum á ólíkum stigum — frá hönnun og skipulagi yfir í áætlanagerð, umsjón og eftirlit framkvæmda.
Þjónusta
Við sjáum um flestalla hönnun og ráðgjöf við mannvirkjagerð.
Hönnun og teikningar
Við þróum hugmyndir yfir í skýrar og framkvæmanlegar lausnir og vinnum gögn sem nýtast við leyfisveitingar, útboð og framkvæmdir.
- Arkitektahönnun
- Aðaluppdrættir
- Verkteikningar og vinnuteikningar
- Þrívíð framsetning hönnunar
- Skipulagsvinna
Tæknileg hönnun
Tæknilegar lausnir þurfa að tengjast arkitektúr, notkun byggingarinnar og framkvæmd hennar. Við vinnum að samhæfðum lausnum þar sem upplýsingar eru skýrar og nýtast áfram í verkefninu.
- Burðarvirkishönnun
- Lagnahönnun
- BIM — Building Information Modeling
Stjórnun og samhæfing hönnunar
Þegar margir ráðgjafar koma að sama verkefni skiptir samhæfing miklu máli. Glóra getur haldið utan um hönnunarferlið og stuðlað að því að ákvarðanir, gögn og ábyrgð séu skýr.
- Hönnunarstjórn
- Samhæfing hönnunargagna
Kostnaður og áætlanir
Góðar ákvarðanir byggja á raunhæfum upplýsingum um umfang, tíma og kostnað. Við vinnum áætlanir sem styðja við ákvarðanatöku áður en framkvæmdir hefjast og meðan á verkefni stendur.
- Kostnaðaráætlanir
- Verkáætlanir
- Tilboðsgerð
- Kostnaðareftirlit
Framkvæmdir og eftirfylgni
Hönnun þarf að skila sér rétt yfir í framkvæmd. Glóra getur fylgt verkefnum áfram og aðstoðað við utanumhald og eftirlit á framkvæmdastigi.
- Umsjón byggingarframkvæmda
- Eftirlit byggingarframkvæmda
Frá hugmynd að framkvæmanlegri lausn
- 01Skilgreinum verkefnið
Við byrjum á að skilja forsendur, markmið og stöðu verkefnisins.
- 02Mótum lausnir
Við vinnum hönnun, gögn og áætlanir í samræmi við þarfir verkefnisins.
- 03Samhæfum heildina
Við tengjum saman viðeigandi hönnunar- og ráðgjafarþætti og vinnum að skýrum ákvörðunum.
- 04Fylgjum verkefninu áfram
Þegar við á getur Glóra fylgt verkefninu yfir í útboð og framkvæmd með áætlanagerð, ráðgjöf, umsjón eða eftirliti.
Við kunnum til verka
Sýnishorn af verkum okkar.
Ein sýn á fleiri þætti verkefnisins
Breið þekking
Glóra kemur að fjölbreyttum þáttum hönnunar, áætlanagerðar og framkvæmda. Það auðveldar okkur að sjá hvernig ákvarðanir á einum stað hafa áhrif annars staðar í verkefninu.
Skýr gögn
Markmiðið er að upplýsingar og hönnun séu skýrar, samræmdar og nýtist þeim sem taka við verkefninu á næsta stigi.
Praktísk nálgun
Við nálgumst verkefni með það að markmiði að finna lausnir sem standast raunverulegar forsendur hönnunar, kostnaðar og framkvæmdar.
Starfsfólk
Hjá Glóru er valinn maður í hverju rúmi – fámennt en góðmennt.





Ertu með verkefni sem þarf að móta, hanna eða koma áfram?
Segðu okkur frá verkefninu og hvar það stendur í dag. Við getum farið yfir næstu skref og metið hvernig Glóra getur komið að því.




